Þú lífsins vindur
Hringrás sem syngur
Í flæði þú
Ferðast víðar nú
by Sanderlei Silveira - 04/03/2023
Þú lífsins vindur
Hringrás sem syngur
Í flæði þú
Ferðast víðar nú
Staðreyndin er sú
[Verse 2: Silja Rós]
Ég skýjahnoðri
Sveima hátt í himinhvolfi
Ég fylgi þér
Hvert sem er
Þinn straumur ýtir mér
[Fyrir-Viðlag: Kjalar, Silja Rós]
Jörðin hún hringsnýst
Ég veit fyrir víst að ekkert mun stöðva það
Við lifum, við deyjum
Í skömminni þegjum, en hvað ef við stoppum þar?
[Viðlag: Silja Rós & Kjalar, Silja Rós]
Þinn sannleikur þraut
En ég styð þína braut
Tengd eins og tunglið og sterk sjávarbönd
Saman við göngum um ótroðin lönd
Ég styð þína braut
[Verse 3: Silja Rós]
Þú lífsins lækur
Streymir svo sprækur
Skilur eftir slóð
Saga þín sem ljóð
Sannleikurinn grár
[Verse 4: Silja Rós & Kjalar]
Mitt flöskuskeyti
Ferðast flóttaleið
Ber með mér boðin
Dæmd og dofin
Færi þér lausnarorð
[Viðlag: Silja Rós & Kjalar, Silja Rós]
Þinn sannleikur þraut
En ég styð þína braut
Tengd eins og tunglið
Og sterk sjávarbönd
Saman við göngum
Um ótroðin lönd
Ég styð þína braut
[Brú: Kjalar, Silja Rós & Kjalar, Silja Rós]
Það sem hjartað þráir
Tendrar bálið
Fylgdu því alla leið
Þín hugljómun
Sleppum dómum
Fylgdu því alla leið
[Endir: Silja Rós & Kjalar]
Tengd eins og tunglið og sterk sjávarbönd
Saman við göngum um ótroðin lönd
Ég styð þína braut
Ég styð þína braut
Ég styð þína braut